Tenglar

 
 

Domino’s Pizza leitast við að gefa starfsmanni tækifæri til starfsþróunar og eru tilfærslur á milli starfa því nokkrar. Hæfur starfsmaður á réttum stað er dýrmætasta fjárfesting fyrirtækisins. Velflestir yfirmenn fyrirtækisins hófu störf hjá Domino’s Pizza sem bílstjórar eða í afgreiðslu. Þeir hafa með vinnu sinni og metnaði sýnt hvers þeir eru megnugir.

Starfsmannastefna Pizza Pizza ehf. er í stöðugri endurskoðun og miðar að því að starfsfólki fyrirtækisins líki vel að starfa hjá fyrirtækinu og vilji vinna þar sem lengst. Starfsánægja og góður starfsandi innan allra deilda er kappsmál.